Á meðan mjög háværar raddir tala um að bókin sé að verða úrelt og að rafbókin sé að taka við af hinni hefðbundnu bók sem við öll þekkjum.

Þá á Ljóðið eftir Bubba Morthens, Ég elska bækur vel við í dag og eldist vel og verður betra með hverju árinu sem líður og á sérstaklega vel við einmitt í dag.

Ljóðið er frá árinu 1996 og er hér birt með leyfi höfundar, færum við Bubba hinar bestu þakkir fyrir.

– – –

Ég elska bækur
Lag og texti: Bubbi Morthens

Orðin eins og litir og málverk til mín koma
móðurlausa stafi í fóstur ég tek.

Bókin er galdur sem geymir sjálfan tímann
í skjóli þíns huga þar finnur hún þrek.

Bókin er og verður þinn vinur
bókin er sem svalandi lækur.

Og ég segi það upphátt
og ég hvísla það í hljóði
að ég elska bækur.

Hve lífið yrði fátækt ef fyndust öngvir pennar
sem færðu okkur bækur eða ljóð að gjöf
hve lífið yrði sorglegt ef sjónvarp væri eina
siglingin um hugans stóru úthöf.