Skjalastærðir

  • Léttari skjöl er best að senda í tölvupósti en stærri skjöl með því að fá hjá okkur slóð til að hala niður.
  • Skjöl þarf að vista í hæstu upplausn í PDF (High Res) og myndum þarf helst að skila inn í 300 punkta upplausn.
  • Pdf skjöl mega vera allt að 40 mb að stærð. Best er að þau séu miðjusett og i stökum síðum (ekki sem spreads), einnig að þau séu cmyk (innhaldi ekki aðra liti en prósesslitina).

Frágangur skjala

  • Passa skal að svartur texti sé bara í svörtu, ekki í 4 litum (registration colour).
  • Til að svartir fletir verði massívari eða með gott density, er hæfilegt að setja undir fletina 50% cyan og 30% magenta til að fá flötinn í dýpri svartan lit.
  • Almennt þarf að hafa 3-5 mm blæðingu. Í stafrænni prentun þarf sérstaklega að huga að því að hafa góða blæðingu og láta texta ekki liggja of nálægt skurði.

Annað

  • Viðskiptavinur fær alltaf góða próförk eða fullkomna fyrirmynd í raunstærð (prótótýpu) áður en verkið er prentað.
  • Prentsmiðjan vinnur með RGB vinnuflæðis-prófíla sem cmyk-ar prentskrár sjálfkrafa.
  • Þegar prentað er á náttúrulegan pappír (svo sem Munken, Scandia eða sambærilegar tegundir) þá er gott að létta myndir lítillega í forvinnslunni. Þessi pappír er gjarnan grófari og drekkur þar af leiðandi mikinn prentlit í sig.
  • Forvinnslan mælir með því að viðskiptavinir noti leturgerðir í Open Type, True Type eða Type 1 (PostScript). Þetta tryggir örugg gæði og minnkar líkurnar á því að texti fari á flakk.